Persónuupplýsingar
Samkóp, samtök foreldrafélaga og foreldraráða í Kópavogi, hér eftir nefnt Samkóp leggur ríka áherslu á að verndun friðhelgi í rafrænum samskiptum.
Stefnan þessi getur breyst með tíð og tíma til að hún endurspegil ætíð breytingar á löggjöf svo og breytingar innan Samkóp og þjóni þér, notendanum, sem best.
Meginþættir
Meðferð persónuupplýsinga hjá okkur byggist á fjórum grundvallarþáttum:
- Þér verður alltaf tilkynnt þegar við öflum upplýsinga um þig eða óskir þínar og væntingar í rafrænum samskiptum.
Skýrt verður tekið fram hvernig slíkar upplýsingar verða notaðar.
- Þú getur valið hvort þú viljir veita viðkomandi upplýsingar.
- Farið verður með allar upplýsingar sem aflað er um þig sem trúnaðarmál og þær verða ekki látnar þriðja aðila í té nema að fenginni heimild þinni.
- Þú hefur aðgengi að öllum persónulegum upplýsingum sem við öflum og höfum í okkar fórum um þig og þú getur á öruggan hátt og hvenær sem er farið fram á að Samkóp eyði upplýsingum um þig.
Umfang upplýsinga frá þér er mismunandi eftir því hvað um hvaða þjónustu er að ræða. Hins vegar, þá verða ofangreindir fjórir grundvallarþættir stefnunnar í heiðri hafðir án tillits til umfangs
upplýsinga þeirra sem aflað er.
Þú munt ætíð sjá að farið er í einu og öllu eftir stefnu okkar um trúnað í öllum tilvikum
þar sem persónulegra upplýsinga er aflað.
Ópersónuleg gögn
Ópersónulegar gögn eru gögn um notkun og þjónustu sem nýtt er og ekki tengd við ákveðna persónu. Vera má að Samkóp safni og greini þessi gögn til að sjá hvernig þessi vefur er notaður.
Þessi ópersónulegu gögn eru til dæmis síður einkvæmar vefsíður skoðaðar og heimsóttar á og innan vefsvæðisins, tegund vafrara, IP tölu og svo framvegis. Flestar þessar upplýsingar er hægt að ná í með upplýsingakökum eða þá annarri greiningartækni.
Aðrir vefir
Á vef þessum eru krækur í aðra vefi. Samkóp ber ekki neina ábyrgð á því hver meðferð persónuupplýsinga er á þeim vefjum.
Friðhelgi barna
Samkóp mun vernda friðhelgi barna og hvetur foreldra og eða forráðamenn til að taka ábyrga afstöðu til áhuga barna sinna á veftengdum aðgerðum og áhugamálum. Samkóp safnar ekki af ráðnum hug upplýsingum um börn og reynir ekki að beina þeim að þessum vefsíðum.