|
|
Grunnur að bekkjarmöppuÁ fundum SAMKÓP í janúar og febrúar 2007 hefur verið rædd sú hugmynd að SAMKÓP beiti sér fyrir því að bekkjarmöppur/foreldrahandbækur verði einnig aðgengilegar á Netinu t.d. í gegnum vefsíður skólanna. Hugmyndin gengur út á að annars vegar verði almennur texti og aðrar upplýsingar úr möppunum beintengdar við regluleg uppfærð móðurskjöl á vef SAMKÓP. Hins vegar geti hver bekkur sett efni inn á eins konar bloggsíður inni í sinni möppu. Innan hvers bekkjar þyrfti að móta reglur um hvaða efni yrði sett á opnar síður og mætti nota tilefnið til að kenna börnum góðar ,,netvenjur” með tilliti til SAFT reglna. Líklegt er að með þessu fyrirkomulagi á bekkjarmöppum muni sá hugmyndabanki sem þær eru nýtast betur auk þess sem upplýsingaflæði á bloggsíðunum verði til þess að styrkja starfið í bekkjunum. Sums staðar hafa verið settar upp síður fyrir bekki. SAMKÓP sendi formönnum foreldrafélaga við grunnskóla Kópavogs tölvupóst þar sem óskað var eftir upplýsingum frá viðkomandi skóla - s.s.: Hafa einhverjir bekkir verið að prófa sig áfram með heimasíður? Heimili og skóli (H&S) hefur til margra ára gefið út bekkjarmöppur eða svokallaðan Foreldrabanka, sem hefur notið mikilla vinsælda og finna má eintök af honum í grunnskólum um allt land. Á heimasíðu H&S kemur fram að hugmyndin að baki Foreldrabankans er sú að þar séu upplýsingar fyrir bekkjarfulltrúa um ýmislegt sem varðar foreldrasamstarfið og skipulag þess. Einnig er hægt að nota möppuna sem hugmyndabanka og skýrslu um hvað hefur verið gert með bekknum og hvað hægt er að gera. Foreldrabankinn á einnig að vera minningarmappa bekkjarins. Þar sem á hverju ári eru settar inn upplýsingar um bekkinn og hvað var gert þetta skólaárið og gjarnan hafðar myndir. Meðal efnis í möppunni eru eftirtaldir liðir:
|