OgVodafone

Toyota

 

Upplýsingar frá lögreglunni

Fyrst bréf lögreglunnar er eftirfarandi:


Kæru foreldrar, þessi póstur er sendur ykkur frá lögreglumönnum á lögreglustöðinni í Kópavogi, sem er svæðisstöð IV hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu (LRH). Framvegis munum við senda ykkur upplýsingar um ýmislegt það sem ykkur gæti að gagni komið að vita um það sem snýr að ykkar hverfi. Pósturinn er sendur í gegn um Mentor í samvinnu við Fræðslu- og menntasvið Kópavogsbæjar, og skólastjóra grunnskólanna í bænum.

Gott ástand hefur verið í sumar og það sem af er hausti, hvað varðar börn og ungmenni. Þá hefur eitthvað verið um það að útivistartími sé brotinn, en hann breyttist sem kunnugt er 1. september s.l. Í barnaverndarlögum er að finna ákvæði um útivistartímann og er þetta ákvæði sett þar börnum til verndar. Sjá upplýsingar um útivistartíma á meðfylgjandi mynd.

Viljum við minna á endurskinsmerkin í fatnaði og skólatöskum barna ykkar þar sem í hönd fer tími þar sem myrkrið er mikið á morgnana er börnin ykkar eru á leiðinni í skólann.

Nú er foreldraröltið farið aftur af stað eftir hlé yfir sumarmánuðina og eru flestir skólar komnir í gang með það. Góð þátttaka í foreldrarölti er mjög mikilvæg að okkar mati til að sporna við óæskilegri hegðun ungs fólks úti við. Gildi þess er einnig ákveðin nágrannavarsla í hverfunum ykkar til að koma í veg fyrir þjófnað o.fl.

Þá viljum við benda fólki á að ganga vel frá húsum sínum og bílum, en það sem af er þessum mánuði hefur t.d. verið brotist inn í 11 bíla. Það sem er tekið er það sem sést að skilið hefur verið eftir í bílunum, en úr tveim þessara bíla var stolið Ipod Nano. Mikilvægt er að skilja ekki verðmæti eftir í bílum er freistað gætu þjófa.

Við viljum hvetja ykkur til að hafa samband við okkur á lögreglustöðinni í Kópavogi ef það er eitthvað sem við getum liðsinnt ykkur með eða þið hafið ábendingar um það sem betur má fara.

Þá viljum við benda á heimsíðu okkar þar sem finna má upplýsingar um svæðisstöðina í Kópavogi, netföng og síma sem þið getið náð í lögreglumenn á stöðinni. Einnig er þar að finna margvíslegar upplýsingar um lögregluna almennt og starfsemi hennar. Heimasíðan er www.lrh.is.

Með bestu kveðjum,

Gylfi Sigurðsson aðalvaðstjóri og Anna Elísabet Ólafsdóttir svæðislögreglumaður

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 04-Oct-2007 @ 04:48 GMT.