|
|
Bekkjarmöppur á NetinuÁ fundum SAMKÓP í janúar og febrúar hefur verið rædd sú hugmynd að SAMKÓP beiti sér fyrir því að bekkjarmöppur og/eða foreldrahandbækur verði einnig aðgengilegar á Netinu t.d. í gegnum vefsíður skólanna. Hugmyndin gengur út á að annars vegar verði almennur texti og aðrar upplýsingar úr möppunum beintengdar við regluleg uppfærð móðurskjöl á vef SAMKÓP. Hins vegar getir hver bekkur sett efni inn á eins konar bloggsíður inni í sinni möppu. Innan hvers bekkjar þyrfti að móta reglur um hvaða efni yrði sett á opnar síður og mætti nota tilefnið til að kenna börnum góðar ,,netvenjur” með tilliti til www.saft.is. Líklegt er að með þessu fyrirkomulagi á bekkjarmöppum muni sá hugmyndabanki sem þær eru nýtast betur auk þess sem upplýsingaflæði á bloggsíðunum verði til þess að styrkja starfið í bekkjunum. SAMKÓP sendi formönnum foreldrafélga við grunnskóla Kópavogs fyrirspurn þar sem óskað var eftir upplýsingum frá hverjum skóla. Spurt var: Hafa einhverjir bekkir verið að prófa sig áfram með slíkt? Eru einhverjir foreldrar í ykkar foreldrasamfélagi sem væru líklegir til að hafa áhuga á taka þátt í hópstarfi við að þróa áfram hugmyndina um bekkjarmöppur? Allar ábendingar eru vel þegnar og hvetjum við ykkur til að hafa samband t.d. með því að senda póst á netfangið samkop@visir.is Aftur til baka í fréttir |