OgVodafone

Toyota

 

Nýr "Kópavogsskólasamningur" - (frétt á heimasíđu Heimils og skóla 13.11.2005)

Bćjarstjórn Kópavogs hefur samţykkt ađ stórauka áhrif foreldraráđs skólans á stjórn hans til nćstu tveggja ára í tilraunaskyni. Ármann Kr. Ólafsson forseti bćjarstjórnar Kópavogs segir ađ veriđ sé ađ fćra meira vald til foreldra međ von um ađ auka skilvirkni og fjölbreytileika.

Samningurinn byggist á ţrennu:

  1. auka sjálfstćđi skóla í raun,

  2. auka valddeifingu innan skólans og síđast en ekki síst ađ

  3. auka íbúđalýđrćđi ţar sem foreldraráđinu gefst nú kostur á ađ koma ađ öllum helstu ákvörđunum innan skólans.

Tilraunin gengur út á ađ foreldraráđiđ sem er kosiđ leynilegri kosningu á opnum fundi verđi ekki ađeins umsagnarađili eins og lög gera ráđ fyrir heldur fái víđtćk völd til ađ leggja línurnar ásamt forráđamönnum skólans. Ţađ mun t.d. hafa áhrif á ráđstöfun fjármagns sem og ráđningu nýs skólastjóra ţegar ţar ađ kemur. Ennfremur verđur foreldraráđinu heimilt ađ stofna sjóđ til ađ stuđla ađ ţví ađ einkaađilar styđji viđ skólastarfiđ. Foreldrar sem sitja í ráđinu munu fá sérstaka ţóknun fyrir störf sín.

SAMKÓP tekur undir međ Heimili og skóla og fagnar ţessari tilraun og frumkvćđi Kópavogsbćjar í auka áhrif foreldraráđa. 10 ár er síđan starfsemi foreldraráđa var bundin í lögum um grunnskóla. Á ţessum tímapunkti er gott ađ staldra viđ og skođa hverju foreldraráđin hafa skilađ og hvort grundvöllur er fyrir ţví ađ efla starfsemi ţeirra enn freka. Á nćstunni mun koma út skýrsla á vegum menntamálaráđuneytisins um stöđu foreldraráđa en Heimili og skóli óskuđu eftir slíkri úttekt á síđastliđiđnu ári.

Til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 20-Apr-2006 @ 10:32 GMT.