Veist þú hvernig aðgerðum gegn einelti er háttað í þínum skóla?
sjá meira
Tökum höndum saman og komum í veg fyrir einelti
Einelti er vandamál sem snertir okkur öll og einstakur nemandi eða fjölskylda getur ekki leyst vandann heldur þarf að leysa hann í samvinnu allra í skólasamfélaginu. Það sama gildir ef einelti á sér stað í félagsmiðstöð, íþróttafélagi eða annarsstaðar; þá kallar það á samvinnu foreldra viðkomandi aðila. Talið er að fimmti hver grunnskólanemandi verði fyrir einelti einhvern tímann á meðan á skólagöngu stendur. Hins vegar er talið að tuttugasti hver nemandi verði fyrir daglegu einelti árum saman, sem þýðir um það bil einn í hverjum bekk.
Einelti er skilgreint sem endurtekið eða viðstöðulaust áreiti og eða valdbeiting, munnleg, sálfræðileg eða líkamleg, framkvæmdar af einstaklingi eða hóp einstaklinga sem beita sér gegn annarri manneskju eða hóp einstaklinga gegn þeirra vilja.
Einelti birtist í mörgum myndum, það getur verið:
- líkamlegt: t.d. barsmíðar, spörk, hrindingar eða skemmdarverk
- munnlegt: t.d. uppnefni, niðrandi athugasemdir og endurtekin stríðni
- skriflegt: t.d. tölvuskeyti, sms-skilaboð, krot og bréfasendingar
- óbeint: t.d. baktal, útskúfun, eða útilokun úr félagahópi
- efnislegt: eigum barnsins stolið eða þær eyðilagðar
- andlegt: þegar barnið er þvingað til að gera eitthvað sem stríðir algjörlega gegn réttlætiskennd þess og sjálfsvirðingu.
Oft taka hinir fullorðnu ekki eftir neinu. Einelti gerist oftast þar sem enginn sér. Sá sem er lagður í einelti vill oft ekki segja frá því sem gerist svo hann hljóti ekki verra af.
Allir geta orðið fyrir einelti en sá einstaklingur sem verður fyrir einelti eða ofbeldi segir oft ekki frá því heldur skammast sín og kennir sjálfum sér jafnvel um. Þess vegna er mjög áríðandi að allir þekki einkenni eineltis.
Á heimasíðu SAMKÓP, www.samkop.is, má finna upplýsingar varðandi einkenni eineltis og aðgerðir gegn einelti í samræmi við leiðbeiningar Heimils og skóla. Þar er jafnframt að finna upplýsingar um aðgerðir einstakra skóla í Kópavogi gegn einelti og tengla inn á heimasíðu Regnbogabarna.
Sagan af geðvonda drengnum minnir okkur á hversu mikið og djúpt orð geta sært. Faðir drengsins gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir. Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu. Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.
Kópavogsbúar – tökum höndum saman og komum í veg fyrir einelti!
Aftur til baka í fréttir