|
|
Sumarið er skemmtilegur tími sem upplagt er fyrir fjölskylduna að nota til samvista. Við viljum samt benda foreldrum á að virða reglur um útivistartíma á sumrin en samkvæmt þeim mega börn 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00 og ungmenni á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til 12. Að sjálfsögðu geta foreldrar sett stífari reglur um þetta ef þeir vilja sjálfir og finnst mörgum foreldrum til dæmis það vera of langur tími fyrir 13 og 14 ára unglinga að vera úti til miðnættis á virkum dögum. Á sumrin er mikilvægt að fylgjast með börnum og unglingum þar sem reynslan sýnir að ófáir hefja þá neyslu vímuefna. Hvetjum við foreldra til að vera á varðbergi gagnvart eftirlitslausum samkvæmum, sumarbústaðaferðum, útilegum sem og öðrum samkomum. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að barnið lendi í aðstæðum sem það ræður ekki við og besta leiðin til þess er að vera til staðar t.d. er unglingurinn fær að fara á tónleika eða útiskemmtanir. Það gefur unglingnum tækifæri til að leita til okkar ef eitthvað kemur upp á og veitir honum öryggi. Ennfremur er það staðfesting á væntumþykju foreldra og að þeim standi ekki á sama um það sem gerist. Auk þess er þetta góð leið til þess að kynnast heimi unglingsins sem gefur tækifæri á jákvæðum umræðum. Unglingar vilja að foreldrar þeirra setji þeim mörk og vilja ekki að foreldrar kaupi fyrir þá áfengi eða bjóði þeim upp á bjór og vín. Þeir telja að foreldrar ættu að banna börnum sínum að drekka áfengi. Þetta kemur fram í sænskri könnun sem gerð var á vegum umboðsmanns barna í Svíþjóð og greint var frá í Morgunblaðinu þann 11.apríl 2005. Um 800 börn og unglingar á aldrinum 10-18 tóku þátt í könnuninni þar sem þau voru spurð um fíkniefni, áfengi og tóbak. Kom fram að 93% svarenda vildu skýr mörk hvað varðar notkun efnanna. Unglingarnir vildu heldur ekki að foreldrarnir yrðu ölvaðir í návist þeirra, þótt eitt eða tvö glös af víni væru í lagi. Á vefsíðu umboðsmanns barna í Svíþjóð eru eftirfarandi ráð til foreldra sem eiga einnig vel við á Íslandi:
"SÝNUM UNGLINGUNUM UMHYGGJU MEÐ JÁKVÆÐUM AGA - LÍKA Á SUMRIN!" Aftur til baka í fréttir |