OgVodafone

Toyota

 

SAMAN Í SÁTT - ţróunarverkefni í Digranesskóla

Á heimasíđu Digranesskóla kemur fram ađ uppskeruhátíđ ţróunarverkefnisins SAMAN Í SÁTT, sem helgađ er baráttu gegn einelti, var haldin í Digranesskóla fimmtudag fyrir páskafrí.

Allir nemendur skólans komu saman í Íţróttahúsinu ţar sem kór skólans flutti skólasöng Digranesskóla og sungnir voru vinasöngvar viđ undirleik hljómsveitar sem skipuđ er nemendum í 9. bekk. Ţá frumflutti hljómsveitin Saman í sátt lagiđ sem ţeir sömdu á ţemadögum fyrr í vetur.

Allir nemendur í 1. – 6. bekk sýndu dans og stúlkur úr 10. bekk gerđu grein fyrir niđurstöđum eineltiskönnunar sem lögđ var fyrir nemendur í febrúar. Könnunin sýnir jákvćđa ţróun á öllum ţáttum sem mćla samskipti og betri skólabrag. Eftir samveruna í íţróttahúsinu hittust vinabekkirnir í skólanum og gerđu sér dagamun. Ţađ var spilađ og fariđ í leiki ţar sem ţeir eldri leiđbeindu ţeim yngri. Fjöldi foreldra sá sér fćrt ađ líta viđ og fylgjast međ börnum sínum.

Eftir hádegiđ skreyttu nemendur ungligadeildar húsiđ hátt og lágt og héldu um kvöldiđ frábćrlega vel heppnađa árshátiđ Hólsins. Veislumatur sem foreldrafélagiđ og matráđur skólans stóđu fyrir var einstaklega góđur og skemmtiatriđi fóru fram á međan borđhald stóđ yfir. Ţá hélt Diskótekiđ Ó Dollý uppi miklu fjöri á dansgólfinu.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 16-Apr-2007 @ 03:35 GMT.