|
|
Útikennslustofa í HeiđmörkSkógrćktarfélag Reykjavíkur hefur í samstarfi viđ Náttúruskóla Reykjavíkur og Vinnuskóla Reykjavíkur komiđ á fót útikennslustofu viđ Elliđavatn í Heiđmörk. Áhersla er lögđ á útinám og náttúruupplifun. Námsefni sem hentar í útikennslustofunni er nú ađgengilegt á www.natturuskoli.is. Námsefniđ er fyrir öll skólastig í eftirfarandi námsgreinum: íslensku, stćrđfrćđi, náttúrufrćđi, heimilisfrćđi og íţróttum. Námsefniđ var unniđ af Margréti Hugadóttur nýútskrifuđum kennara en hún hlaut styrk frá Nýsköpunarsjóđi. Verkefniđ var einnig styrkt af Skógrćktarfélagi Reykjavíkur. Útinám er áhugaverđ kennsluađferđ ţar sem skólastarf er ađ miklu leyti flutt út úr hinni hefđbundnu skólastofu. Međ útikennslu nýta nemendur öll sín skynfćri til ađ nema og upplifa. Nemandinn lćrir ađ umgangast umhverfi sitt, ađ ţekkja sjálfan sig og eiga í samspili viđ náttúruna. Helstu rök sem mćla fyrir aukinni notkun útikennslu byggjast á rannsóknum sem gerđar hafa veriđ á síđustu áratugum. Námsumhverfi er gífurlega mikilvćgur hluti af kennslu. Kennsla sem á sér stađ úti í hinu lifandi umhverfi virkar hvetjandi fyrir nemendur og virkjar skynfćri ţeirra. Útikennsla er ennfremur talin hafa jákvćđ áhrif á félagslega ţáttinn hjá nemendum. Ţeir lćra ađ umgangast hvern annan í nýju umhverfi og mynda sjálfir ný tengsl sín á milli. Ţau fjölbreyttu verkefni sem unniđ er ađ í útikennslu ná til fjölbreytts hóps nemenda sem er misjafn ađ getu og hćfileikum og virka áhugahvetjandi fyrir ţá. Útikennsla veitir kennurum auk ţess tćkifćri til ađ mynda jákvćđ og náin tengsl viđ nemendur sína. Nám í ţessu umhverfi gefur nemendum tćkifćri til ađ tjá sig á opinskáan hátt og frelsi ţeirra til athafna er meira. Kennsla sem býđur upp á slíkt frelsi flokkast undir gćđakennslu. Upplýsingar hér ađ ofan eru af heimasíđu Skógrćktarfélags Reykjavíkur - www.skograekt.is. Aftur til baka í fréttir |