OgVodafone

Toyota

 

Ráðstefna á Alþjóðlega netöryggisdaginn

Veraldarvefurinn er völundarhús

Tími: Þriðjudaginn 6. febrúar kl. 15:00 – 17:15
Staður: Íslensk erfðagreining, Sturlugötu 8, Reykjavík

Ráðstefna um siðferði á Netinu verður haldin á vegum SAFT þann 6. febrúar nk. á Alþjóðlega netöryggisdaginn

SAFT er vakningarverkefni á vegum Heimilis og skóla um jákvæða og örugga notkun barna og unglinga á Netinu og tengdum miðlum.

Siðferði og Netið eru æ oftar nefnd í sömu andrá enda Netið síbreytilegur vettvangur sem við erum stöðugt að venjast og læra á eftir því sem möguleikum þess og tengingum við aðra miðla fjölgar. Mikið hefur verið rætt um að svo virðist sem þeir umgengnishættir sem við höfum komið okkur saman um í hinu áþreifanlega umhverfi hafi ekki færst yfir á vettvang Netsins. Einnig er rætt um að netnotkun einstaklinga í skóla eða vinnu sé önnur en sú sem fer fram heima og mikið vanti á að við séum meðvituð um eðli Netsins og neikvæða og jákvæða eiginleika þess. Þessi atriði verða meðal annars til umræðu á ráðstefnunni sem ætluð er öllum sem áhuga hafa á þessum málum. Sérstaklega höfðar hún til skólastjórnenda, kennara og kennaranema, foreldra, fjölmiðlafólks, netþjónustuaðila og fulltrúa stjórnvalda og starfsfólks þeirra stofnana sem hafa með reglur um notkun upplýsingatækninnar að gera

Meðal markmiða ráðstefnunnar er að vekja umræður og umhugsun um Netið sem opinberan vettvang og gagnvirkan fjölmiðil, nauðsyn þess að almennt siðferði og umgengnisreglur færist yfir á þennan miðil og að skólakerfið bregðist við gjörbreyttum aðstæðum í upplýsingasamfélaginu.

Dagskráin verður nánar auglýst síðar

Hægt er að skrá sig á saft@saft.is

Nánari upplýsingar gefa verkefnisstjórar SAFT:

Guðberg K. Jónsson: gudberg@heimiliogskoli.is

Sjöfn Þórðar: sjofn@heimiliogskoli.is

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 25-Jan-2007 @ 05:24 GMT.