OgVodafone

Toyota

 

Endurskoðun skólastefnu og fundur skólanefndar 24. febrúar 2007

Í skólanefnd er hafin vinna við endurskoðun á skólastefnu bæjarins, enda segi í núverandi skólastefnu að hún skuli endurnýjuð á hverju kjörtímabili.

Skólanefnd hefur boðað til fundar laugardaginn 24. febrúar með fulltrúum allra þeirra aðila sem koma að skólamálum í Kópavogi, þ.e. foreldrafélögum, foreldraráðum, hagsmunasamtökum kennara og skólastjóra og starfsmönnum fræðsluskirfstofu Kópavogsbæjar.

Í fundargerð skólanefndar frá 6. desember 2006 er fjallað um endurskoðun stefnumótunar skólanefndar. Þar segir frá því að Áshildur Bragadóttir hafi kynnt áætlun um endurskoðun stefnumótunar um málefni grunnskólanna. Áætlað er að umræður um áætlunina haldi áfram á næsta fundi og vinna við endurskoðunina hefjist eftir áramót.

Nýlega tók til starfa starfshópur um endurskoðun menntastefnu Reykjavíkurborgar. Helsta hlutverk starfshópsins er að endurskoða fyrirliggjandi stefnu Reykjavíkurborgar í menntamálum, setja fram tillögur um markmið og áherslur til næstu ára í námi og starfi í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskólum og fullorðinsfræðslu í samstarfi við hagsmunaaðila. Þann 4. janúar verður haldinn vinnufundur þar sem samráðs- og hagsmunaaðilum er boðin þátttaka í verkefninu. Það verður fróðlegt að sjá hvaða málefni verða helst til umfjöllunar á þeim fundi.

Á heimasíðu SAMFOK, www.samfok.is, má finna umsögn samtakanna um stefnu og starfsáætlun Menntasviðs Reykjavíkur árið 2007 - sjá nánar.


Endurskoðun skólastefnu Kópavogsbæjar í

Kríunesi við Elliðavatn laugardaginn 24. febrúar 2007 kl. 9:30.

Dagskrá:
9:30 – 9:45 Andrés Pétursson, formaður Skólanefndar Kópavogs, setur fundinn og kynnir vinnufyrirkomulagið.
9:45 – 10:45 Vinnuhópar
10:45 – 11:00 Kaffihlé
11:00 – 12:20 Vinnuhópar kynna niðurstöður, umræður
12:20 – 12:30 Samantekt og fundarslit
12:30 – 13:30 Hádegisverður. María Kristín Gylfadóttir, formaður stjórnar Heimilis og skóla, kynnir endurskoðun grunnskólalaganna

Kríunes, aðkoma: Þegar komið er að hringtorgi við Vatnsendaveg, Álfkonuhvarf og Breiðahvarf er beygt niður að vatninu, niður Breiðahvarf. Því næst er beygt til hægri niður Funahvarf og við enda þeirrar götu er beygt til vinstri niður Fornahvarf, þar er keyrður stuttur spölur, beygt til hægri við næstu gatnamót, og svo fljótlega aftur til vinstri þaðan sem leið liggur niður að vatninu. Kríunes er stórt hús alveg út á tanganum niður við vatnið. Á leiðinni er vegvísar við öll gatnamót merktir Kríunesi.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 22-Feb-2007 @ 05:34 GMT.