OgVodafone

Toyota

 

Viðhorfskönnun varðandi vetrarfrí í grunnskólum

Í síðustu viku fengu foreldrar grunnskólabarna í Kópavogi tölvupóst þar sem leitað var eftir viðhorfi þeirra til vetrarfrídaga í grunnskólum.

Í frétt á heimasíðu Kópavogsbæjar kemur fram að fyrir skömmu var undirritaður samningur Kópavogsbæjar við Outcome hugbúnað ehf. sem hefur þróað og markaðssett Outcome vefkannanakerfi. Með samningnum fær Kópavogsbær aðgang að Outcome kannanakerfinu sem gerir bænum kleift að framkvæma viðhorfs- og þjónustukannanir í gegnum tölvupóst og internetið.

Þar segir jafnframt að í framtíðinni mun Kópavogsbær framkvæma rafrænar kannanir með kannanakerfi Outcome til að afla upplýsinga um viðhorf íbúa með það að markmiði að bæta þjónustu við bæjarbúa. Kerfið mun einnig verða notað við framkvæmd kannana sem lúta að innra starfi bæjarins, t.d. skólamatskannana í 26 skólum Kópavogs og ýmissa kannana sem varða starf leikskóla.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 04-Feb-2007 @ 12:18 GMT.