OgVodafone

Toyota

 

Bréf SAMKÓP til bćjarráđs Kópavogs, dagsett 31. október 2006

Efni: Beiđni um fjárveitingu til ađ tryggja starfsgrundvöll SAMKÓP

Viđ förum ţess á leit viđ bćjarráđ Kópavogs ađ rekstrargrundvöllur SAMKÓP verđi tryggđur međ árlegu framlagi til samtakanna.

Í međfylgjandi ársskýrslu fyrir áriđ 2005 – 2006 er gerđ grein fyrir helstu verkefnum samtakanna á starfsárinu en markmiđ samtakanna eru:
• ađ standa vörđ um réttindi grunnskólabarna til menntunar og ţroska
• ađ beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf
• ađ stuđla ađ skipulegu samstarfi ađildarfélaganna
• ađ vera sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart sveitarfélagi og stjórnvöldum

Međ öflugu foreldrasamstarfi teljum viđ ađ hćgt sé ađ gera góđa skóla enn betri. Samstarfsvettvangur foreldraráđa og foreldrafélaga er mikilvćgur liđur í ađ tryggja öflugt foreldrasamstarf í einstökum skólum og ţví mikilvćgt ađ samtökunum verđi tryggđur rekstrargrundvöllur til ađ takast á viđ ţau verkefni sem stuđla ađ öflugu foreldrasamstarfi.

Á fundi bćjarstjórnar Kópavogs, 16. desember 2003, var samţykkt ađ veita SAMKÓP 500 ţús. kr. rekstrar- og framkvćmdastyrk. Ţađ er ósk okkar ađ Kópavogsbćr styrki samtökin um sömu fjárhćđ á ţessu starfsári. Hluta af fjárhćđinni, kr. 100.000, hyggst SAMKÓP verja til ađ greiđa fyrir ađild allra foreldrafélaga viđ grunnskóla Kópavogs ađ Heimili og skóla, landssamtökum foreldra, en stuđningur samtakanna viđ foreldrasamstarf í bćnum er ómetanlegur.

Virđingarfyllst,

Hrefna Gunnarsdóttir
Formađur SAMKÓP

Afrit sent:
Skólanefnd Kópvogs


Í fundargerđ bćjarráđs frá fundi 2. nóvember 2006 er međal annars bókađ:

Frá SAMKÓP, dags. 31/10, beiđni um fjárveitingu ađ upphćđ kr. 500.000 vegna nćsta starfsárs.
Bćjarráđ vísar erindinu til gerđar fjárhagsáćtlunar fyrir nćsta ár.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 04-Nov-2006 @ 11:30 GMT.