OgVodafone

Toyota

 

Elskar þú barnið þitt nógu mikið?"

Á heiÍ 10. tölublaði Kópavogspóstsins, sem dreift var í dag, birtist áminning frá SAMKÓP á blaðsíðu 4 undir yfirskriftinni "Elskar þú barnið þitt nógu mikið?"

Á blaðsíðu 9 í sama tölublaði má jafnframt finna greinarstúf frá SAMKÓP undir fyrirsögninni:

Fjölskyldan fagnar lokum samræmdra prófa?"

Þar segir:

Miðvikudaginn 9. maí munu nemendur 10. bekkja í öllum skólum Kópavogs fara í (ó)vissuferðir í tilefni af lokum samræmdra prófa. Aðfararnótt laugardagsins 12. maí bjóða félagmiðstöðvarnar í Kópavogi upp á dagskrá „Menningarnætur” sem lýkur kl. 8:00 að morgni laugardagsins. Nú ber svo við að sá dagur er jafnframt kosningadagur og Eurovisiondagur. Foreldrar eru því hvattir til að skipuleggja kvöldið með börnum sínum og þannig koma í veg fyrir eftirlitslaus partý og sumarbústaðaferðir unglinga án fullorðinna.

Foreldrar eru hvattir til þess að ræða saman, sérstaklega ef unglingarnir eru að skipuleggja samfögnuð. Reynslan sýnir að margir unglingar byrja neyslu áfengis og annara vímugjafa eftir samræmd próf, viljum við reyna sporna við því. Rannsóknir sýna að því lengur sem hægt er að seinka neyslu þessara vímugjafa er ólíklegra að unglingurinn ánetjist áfengi eða öðrum vímugjöfum. Jafnframt biðjum við foreldra nemenda í 8. og 9. bekk að gera það sama, fylgjast vel með og halda reglur um útivistartíma.

Samkvæmt útivistarreglum mega börn 13-16 ára ekki vera úti lengur en til miðnættis frá 1. maí til 1. september. Reglurnar miðast við árganginn – þ.e. útivistarreglur ná ekki yfir unglinga sem verða 16 ára á árinu 2007 – en að sjálfsögðu eru það foreldrar sem setja sínar eigin reglur fyrir ósjálfráða unglinga, með hag þeirra í huga. Munið að: Miðvikudaginn 9. maí munu nemendur 10. bekkja í öllum skólum Kópavogs fara í (ó)vissuferðir í tilefni af lokum samræmdra prófa. Aðfararnótt laugardagsins 12. maí bjóða félagmiðstöðvarnar í Kópavogi upp á dagskrá „Menningarnætur” sem lýkur kl. 8:00 að morgni laugardagsins. Nú ber svo við að sá dagur er jafnframt kosningadagur og Eurovisiondagur. Foreldrar eru því hvattir til að skipuleggja kvöldið með börnum sínum og þannig koma í veg fyrir eftirlitslaus partý og sumarbústaðaferðir unglinga án fullorðinna.

Foreldrar eru hvattir til þess að ræða saman, sérstaklega ef unglingarnir eru að skipuleggja samfögnuð. Reynslan sýnir að margir unglingar byrja neyslu áfengis og annara vímugjafa eftir samræmd próf, viljum við reyna sporna við því. Rannsóknir sýna að því lengur sem hægt er að seinka neyslu þessara vímugjafa er ólíklegra að unglingurinn ánetjist áfengi eða öðrum vímugjöfum. Jafnframt biðjum við foreldra nemenda í 8. og 9. bekk að gera það sama, fylgjast vel með og halda reglur um útivistartíma.

Samkvæmt útivistarreglum mega börn 13-16 ára ekki vera úti lengur en til miðnættis frá 1. maí til 1. september. Reglurnar miðast við árganginn – þ.e. útivistarreglur ná ekki yfir unglinga sem verða 16 ára á árinu 2007 – en að sjálfsögðu eru það foreldrar sem setja sínar eigin reglur fyrir ósjálfráða unglinga, með hag þeirra í huga.

Munið að:
• framfylgja reglum um útivistartíma
• leyfið ekki eftirlitslaus samkvæmi og sumarbústaðaferðir án fullorðinna
• verið vakandi yfir unglingunum og hafið samráð við aðra foreldra
• takið þátt í foreldrarölti
• uppeldi barna er a.m.k. „18 ára ábyrgð”

Höfum það hugfast að við foreldrar berum ábyrgð á uppeldi barnanna okkar og menntun a.m.k. þar til þau ná 18 ára aldri. Rannsóknir hafa sýnt svo ekki verður um villst að þeim börnum sem upplifa umhyggju, aðhald og eftirlit foreldra líður betur, þeim gengur betur í skóla og þau eru síður líkleg til að neyta áfengis og annarra vímuefna.

Munið að foreldrar eru bestir í forvörnum - samtaka, ákveðnir og elskulegir.

Aftur til baka í fréttir

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 09-May-2007 @ 08:22 GMT.