OgVodafone

Toyota

 

Fundargerð stjórnar SAMKÓP.

Fundur haldinn fimmtudaginn 6. apríl 2006 kl. 18:30 hjá Hugbúnaði, Engihjalla 8.


Mætt voru: Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (JE), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ) og Hrefna Gunnarsdóttir (HG) sem ritar fundargerð þessa. Jóhanna M. Baldursdóttir (JB) tilkynnti forföll, en Pétur Valdimarsson (PV)kom því miður í tvígang að lokuðum dyrum eftir að fundurinn hófst. Jón Svavarsson (JS) var fjarverandi.


Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:

1. Heimasíða SAMKÓP – TMÞ sagði frá möguleikum varðandi vistun heimsíðu og sýndi ýmsa möguleika varðandi uppsetningu efnis á slóðinni http://tryggvi.org/samkop. TMÞ mun halda áfram vinnu í tengslum við nýja heimasíðu, bæði hvað varðar vistun og útlit.

2. “Við vökum yfir þér” – RÁ kynnti að búið væri að fá endanlegt vilyrði frá væntanlegum styrktaraðila, varðandi endurnýjun símtækja og trygga áskriftarleið. Rætt var um stöðu mála varðandi bækling og hugmyndir um gerð veggspjalds ræddar. RÁ falið að ganga frá endanlegu útliti bæklings með nýjum símanúmerum allra röltvakta og logo styrktaraðila, í samvinnu við JGE. Ákveðið láta veggspjaldið vera í takt við bæklinginn, þ.e. með mynd af foreldrum á röltinu, sbr. forsíða bæklings. Mikilvægt að samsvörun sé milli bæklings, veggspjalds og heimasíðu – sú samsvörun gæti legið í myndinni af foreldrum á röltin. Að lokum ræddar hugmyndir að skiltum á ljósastaura bæjarsins sem minna á “Við vökum yfir þér” – verkefnið.

3. “Fundarsköp” – HG var búin að kaupa bækur og annað efni varðandi fundarsköp. Fróðleiksmolar varðandi þetta efni verða færðir inn á heimasíðu SAMKÓP og þar verður útlánamöguleikinn kynntur.

4. Skólanefnd – vegna fjarveru PV féll þessi liður að mestu niður nema hvað HG sagði frá svörum sem PV hafði fengið frá fræðsluskrifstofunni.

5. Erindisbréf fulltrúa foreldra í skólanefnd – beðið eftir nýjum drögum frá PV. Þarf að skoðast fyrir og á næsta fundi SAMKÓP ásamt starfsreglum SAMKÓP og væntanlegum lagabreytingum.

6. Starf SAMKÓP á næstu vikum – verkefnaáætlun SAMKÓP endurskoðuð og ákveðið að sleppa fundi með fulltrúum stjórnmálaflokkanna. Í staðinn mun SAMKÓP senda þeim spurningalista og óska eftir svörum til birtingar á heimasíðu samtakanna. Þar verður aðallega leitað eftir áherslum flokkanna varðandi foreldrasamstarf og starfsgrundvöll SAMKÓP.

7. Önnur mál

  • Ráðstefna ÍTK – Una María Óskarsdóttir, formaður ÍTK, hefur leitað til SAMKÓP til að kanna áhuga samtakanna á þátttöku í ráðstefnu og boðun foreldra til að fræðast um niðurstöðu rannsóknar á áfengis- og vímuefnaneyslu ungmenna í Kópavogi og hvernig hægt er að hefta brottfall ungmenna úr íþrótta- og tómstundastarfi. Fundarmenn voru allir samþykkir þátttöku SAMKÓP. Hugmyndir um að tengja kynningu og fjölmiðlaumfjöllun varðandi verkefni “Við vökum yfir þér” við þennan viðburð t.d. með fundi á undan ráðstefnunni. Endanleg tímasetning liggur ekki fyrir – en mánudagurinn 8. maí kl. 18 – 20 er inni í myndinni. HG mun láta UMÓ vita af áhuga SAMKÓP, en nauðsynlegt er að festa fyrirkomulag og tímasetningar sem fyrst niður. RÁ mun vera í sambandi við UMÓ eftir helgi.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 21:30


Nánari umfjöllun fyrir fundargerðabók og stjórn:

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 01-May-2006 @ 03:22 GMT.