OgVodafone

Toyota

 

FULLTRÚARÁĐSFUNDUR SAMKÓP

haldinn ţriđjudaginn 16. janúar 2007 kl. 20:00 í Hjallaskóla.


Fundarmenn voru frá:

Digranesskóla: Reynir Stefán Gylfason (FR) og Auđur Gunnarsdóttir (FF/FR)
Hjallaskóla: Hrefna Gunnarsdóttir (HG) (SAMKÓP)
Kársnesskóla: Ragnheiđur Jónsdóttir (FF), Íris Lind Verudóttir (FR) og Christer Magnusson (FR)
Kópavogsskóla: Guđrún Atladóttir (FF)
Lindaskóla: Pétur Valdimarsson (FR/SAMKÓP) og Sigríđur Eysteinsdóttir (FF)
Salaskóla: Bryndís Böđvarsdóttir (FF)
Smáraskóla: Erlendur Geirdal (FF/SAMKÓP), Ingibjörg Birna Ólafsdóttir og Herdís Dröfn Fjeldsted
Snćlandsskóla: Rannveig Ásgeirsdóttir (RÁ) (FF/SAMKÓP) og Ásta St. Eiríksdóttir (FR)
Vatnsendaskóla: Jóhann Björgvinsson (FF)


Eftirfarandi var til umrćđu á fundinum:

1. SAMKÓP veturinn 2006 - 2007
HG bauđ fundargesti velkomna og kynnti tilgang fundarins. Fundarmenn kynntu sig og HG sagđi frá verkefnum SAMKÓP fyrri hluta vetrarins. - meira -

2. Af vettvangi skólanefndar
RÁ, fulltrúi foreldra í skólanefnd, kynnti störf nefndarinnar og verkefni fulltrúa foreldra í skolanefnd auk ţess sem hún sagđi frá ţví sem efst er á baugi á vettvangi skólanefndar.

3. Fulltrúar sögđu frá foreldrasamstarfi í sínum skóla og skiptust á skođunum.

Međal annars var rćtt um:

  • Húsnćđismál eldri skóla og mikilvćgi ţess ađ ţeir sitji ekki eftir hvađ varđandi endurbćtur á húsbúnađi. Foreldraráđ Digranesskóla og Snćlandsskóla eru m.a. ađ vinna í ţessum málum og hafa bođađ fulltrúa skólanefndar á fund í skólanum.
  • Galla á nýju skólahúsnćđi viđ Vatnsenda ţar sem veggflísar hrynja utan af húsinu og hálf lausar flísar skapa mikla slysahćttu.
  • Mikilvćgi ţess ađ virkja krafta forelda í skólastarfinu sjálfu – t.d. í tengslum viđ lífsleiknikennslu (fjármálafrćđslu o.fl.)
  • Agamál og mikilvćgi ţess ađ tekiđ sé á ţeim málum innan heimilanna. Skólabođunardagar í upphafi skólaárs – ţar sem nemandi og a.m.k. annađ foreldri/forráđamađur hitta kennarann og fariđ er yfir skólareglurnar.
  • Erlenda starfsmenn í skólum og mikilvćgi ţess ađ vandađ sé til ţess hvernig starfiđ og starfsumhverfiđ er kynnt fyrir ţeim. Tungumálaerfiđleikar og mismunandi menningarbakgrunnur veldur misskilningi í umgengni viđ börnin og ţau eru sögđ sýna útlendingunum oftar ókurteisi en íslensku skólastarfsmönnum.
  • Nýtt foreldrasamfélag í Hörđuvallskóla sem fer vel af stađ.
  • Nefndir utan um ýmis konar verkefni. Í Kópavogsskóla starfa nokkra fastanefndir sem kynntar voru sérstaklega í bćklingi (bćklingur verđur settur á netiđ) sem gefinn var út haustiđ 2006. Foreldrafélag Kársnesskóla hefur einnig gert talsvert af ţví ađ fá nefndir til ađ sjá um útfćrslu á góđum hugmyndum og góđ reynsla af ţví ađ grípa fólk međ góđar hugmyndir og fá ţađ til ađ fylgja hugmyndunum eftir.
  • Nýta reynslu fyrrverandi fulltrúa í foreldraráđum og –félögum – ţ.e. eiga í baklandinu nokkurs konar öldungaráđ sem hćgt er ađ leita til.
  • Tengsl foreldra viđ félagsmiđstöđvarnar, t.d. starfar Menningarmiđstöđvarnefnd Kópavogsskóla međ skólastjórnendum og íţrótta- og tómstundaráđi ađ uppbyggingu góđrar félagsađstöđu.
  • Leiđarkerfi strćtisvagna m.t.t. ađkomu ađ Digranesskóla ţar sem Skólahljómsveit Kópavogs og HK eru međ ađsetur. Viđ síđustu breytingar á leiđarkerfinu urđu ţćr breytingar ađ börn frá Vatnsenda ţurfa ađ ganga frá Digranesheiđi upp ađ Digranesskóla oft á tíđum međ fyrirferđarmiklar hljóđfćratöskur.
  • Ónćgja međ Tivolí viđ Smáralind, en starfsemi ţess hefur leitt til óćskilegra hópamyndana bćđi á daginn og kvöldin. Ákveđiđ ađ senda bćjarráđi bréf ţar sem fariđ verđur ţess á leit ađ ekki verđi veitt leyfi fyrir ţessa né sambćrilega starfsemi í Kópavogi nćsta sumar. *1

Ţegar komiđ var ađ síđasta dagskrárliđnum – skólastefnu Kópavogs – var tíminn útrunninn og ţví ákveđiđ ađ fulltrúar sendu SAMKÓP ábendingar međ tölvupósti varđandi ţau atriđi sem ţeir telja mikilvćgast ađ breyta og/eđa bćta viđ skólastefnuna.*2

Fundi var slitiđ kl. 22:15.


*1 Í framhaldi af samráđsfundi um foreldrarölt var haft samband viđ fulltrúa Smáralindar sem tóku ábendingum frá foreldrum mjög vel.

*2 Síđar fékk SAMKÓP bréf frá skólanefnd dagsett 19. janúar ţar sem samtökunum er faliđ ađ kalla saman hagsmunaađila foreldra og taka saman ábendingar sem verđa rćddar á fundi hagsmunaađila međ skólanefnd 24. febrúar 2007. Stjórn SAMKÓP ákvađ ţví ađ bođa fulltrúa FF og FR til fundar 5. febrúar ţar sem skólastefnan og endurskođun hennar verđur tekin til umrćđu.

Til baka í fundargerđayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getiđ (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síđast uppfćrt 25-Jan-2007 @ 07:10 GMT.