OgVodafone

Toyota

 

Fundargerð stjórnar SAMKÓP.

Fundur haldinn mánudaginn 20. nóvember 2006 kl. 20:15 í Lindaskóla.


Mætt voru: Hrefna Gunnarsdóttir (HG), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ), Pétur Valdimarsson (PV) og Erlendur Geirdal (EG). Ekki mættur: Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), auk þess sem varamenn höfðu boðað forföll.

Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:


  • Fjármál SAMKÓP / Samkomulag við Heimili og skóla - Fyrir liggur að Kópavogsbær hefur úthlutað SAMKÓP 500 þús. kr. fyrir árin 2005 og 2006, samtals 1 millj. kr. Ákveðið að sækjast eftir því að gera samning við bæjaryfirvöld um árlegt fast framlag til samtakanna, en í samningnum yrðu jafnframt lagðar kvaðir á SAMKÓP varðandi upplýsingagjöf til skólanefndar, t.d. ársskýrslu, ársuppgjör og áætlanir. Jafnframt ákveðið ítreka beiðni SAMKÓP um fund með fulltrúum skólanefndar og fræðsluskrifstofu. Þann 29. nóv. verður í Snælandsskóla skrifað undir samkomulag um félagsaðild grunnskóla í Kópavogi að Heimili og skóla. Fyrirhugað er að hluti framlags bæjarsjóðs til SAMKÓP verði notaður til að greiða fyrir félagsaðildina.

  • Af vettvangi skólanefndar - Rætt um svör Slökkviliðs hbs. og tæknideildar Kópavogsbæjar við fyrirspurnum fulltrúa foreldra í skólanefnd um brunavarnir í grunnskólum. Ákveðið að Pétur taki saman gátlista um brunavarnir fyrir foreldraráð.

  • Stoðir í skólastarfi – bæklingur - Rætt var um bækling SAMFOKS sem um flest er góð fyrirmynd en nokkrum atriðum þarf að að mati fundarmanna að breyta til samræmis við áherslur SAMKÓP. Umræðum verður fram haldið á næsta fundi.

  • “Við vökum yfir þér” – staða mála varðandi borða og kynningu. RÁ talaði við auglýsingastofu um útfærslu borða. Ákveðið að leita eftir verðtilboði á 10 borðum með festingum og leita síðan eftir því að bæjarstarfsmenn festi þá upp.

  • Forvarnir – Foreldrarölt - Flass.net o.fl.- HG fór yfir stöðu röltsins sem almennt er góð. Stjórnir foreldrafélaganna eru hvattar til að fylgjast með því að möppurnar sem geymdar eru á lögreglustöðinni séu í lagi og innihaldi réttar upplýsingar um röltleiðir og að þar séu eyðublöð fyrir röltskýrslur. RÁ kynnti sér samkomu sem haldin var af aðstandendum Flass.net fyrir unglinga á Broadway s.l. miðvikudag. Að hennar mati var margt athugavert við samkomuna. Ákveðið að ræða áfram síðar.

  • Heimasíða – hýsing á vef. (TMÞ) - Umræðum frestað vegna fjarveru TMÞ.

  • Önnur mál

      Endurskinsmerki  o.fl. (TMÞ) - Umræðum frestað.

      Rætt var um nauðsyn þess að “Handbók Mararskóla í Kópavogi” verði vistuð miðlægt svo foreldrar eigi auðveldar með að   nálgast hana. Foreldrafélag Snælandsskóla vill einnig gefa öllum foreldrum kost á að nýta þeirra útfærslu af handbókinni.

      Rætt um mönnun dægradvala við grunnskóla Kópavogs, m.a. út frá þeirri hugmynd að fá virka eldri borgara til starfa og styrkja tengslin milli kynslóðanna.

      Rætt um forvarnanefnd Kópavogs og aðkomu SAMKÓP að nefndinni. 

      Minnt á málþing varðandi ný grunnskólalög, sem haldið verður laugardaginn 25. nóvember kl. 9:30 – 13:00.

      Umræða um aðstöðuleysi samtakanna. Ákveðið að skoða möguleg úrræði síðar.

Næsti fundur verður fimmtudaginn 14. desember. 1*

Fundi slitið kl. 22 - EG.

1* (Í desember var tekin ákvörðun um að fresta fundi sem halda átti 14. desember. Hann verður haldinn 9. janúar 2007.)

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 17-Jan-2007 @ 10:45 GMT.