Fundargerđ stjórnar SAMKÓP.
Fundur haldinn mánudaginn 21. ágúst 2006 kl. 18:00 ađ Lćkjarhjalla 1.
Mćtt voru: Hrefna Gunnarsdóttir (HG), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ), Pétur Valdimarsson (PV), Tryggvi M. Ţórđarson (TMŢ) og Erlendur Geirdal (EG).
Eftirfarandi var til umrćđu á fundinum:
- Gát- og vinnulisti foreldraráđa – Fyrstu tvö atriđi gátlistans eru í verkahring SAMKÓP, ţ.e. annars vegar ađ fara yfir framlög sveitarfélagsins til skólamála og bera saman viđ fjárhagsáćtlun ţess og framlög annara sveitarfélaga og hins vegar ađ bera grunnskólalög, reglugerđir og reglur frá menntamálaráđuneytinu saman viđ áćtlanir bćjarins. HG leggur fram gögn sem sýna á ađ kostnađur pr. nemanda er mjög mismunandi eftir skólum á höfuđborgarsvćđinu skv uppl. frá Sambandi ísl. sveitarfél. vegna ársins 2004. Lćgstur er kostnađurinn í Kópavogi. HG ćtlar ađ útvega gögn vegna 2005 til samanburđar. Rćtt um liđ 3, um lestur foreldraráđa á skólanámskrá - oft er allt ákveđiđ án samráđs viđ foreldraráđin. Best vćri ađ fá alla skólastjóra á fund til ađ rćđa samstarfiđ viđ foreldraráđin ofl.
- Fulltrúaráđsfundur – Ákveđiđ var ađ halda fund međ fulltrúum foreldraráđa fimmtudaginn 7 sept. kl 20, stađsetning ekki ákveđin en HG ćtlar ađ athuga međ kennarastofu Hjallaskóla. Tilgangur fundarins er ađ fara yfir gátlista foreldaráđa og safna saman “bestu ađferđum” foreldraráđa til ađ uppfylla gátlistann.
- Handbók Mararskóla - Rćtt um ađ ađlaga handbókina ađ ađstćđum í Kópavogi og sćkja um ađstođ frá skólaskrifstofu vegna fjölföldunar en áćtlađ er ađ gera ţrjú eintök fyrir hvern skóla. RÁ leggur inn erindi hjá skólanefnd.
- RÁ ćtlar ađ athuga međ verđ á borđum til ađ hengja upp í samfellu viđ dreifingu bćklingsins Viđ vökum yfir ţér.
- TMŢ ćtlar ađ fara ţess á leit viđ tölvudeild bćjarins ađ bćrinn hýsi vef SAMKÓP.
- Rćtt var um notkun endurskinsmerkja og hvort unglingarnir mundu frekar vilja bera ţau ef ţau vćru “áhugaverđari” ţ.e. meira spennandi en ţessi hefđbundnu merki međ nöfnum og lógó-um tryggingarfélaga. TMŢ ćtlar ađ kanna áhuga hjá rannsóknarnefnd umferđarslysa fyrir ţví ađ útfćra \"áhugaverđ\" endurskinsmerki í samráđi viđ fyrirtćki.
- HG sýndi drög ađ kynningarbćklingi á FF og FR frá SAMFOK fyrir foreldra. Fundarmenn voru sammála um ađ SAMKÓP ćtti ađ stefna ađ ţví ađ gera bćkling í svipuđum dúr og hafa hann klárann fyrir ađalfundi FF í vor.
- Kynningarfundur fyrir bekkjarfulltrúa – ákveđiđ ađ taka stöđuna um miđjan september og ákveđa fundartíma ţá.
- Skólamáltíđir - HG hefur sett vísanir á heimasíđur matarseljenda undir “Tengla” á heimasíđu SAMKÓPS. Rćtt var um fyrirkomulag skólamáltíđa m.a. hvort ekki vćri ćskilegt ađ kennarar snćddu hádegismáltíđ međ nemendum. Fundarmönnum ţótti einsýnt ađ ţađ mundi bćta agann ef kennarar gćtu litiđ til međ nemendum viđ borđhaldiđ.
Áformađ ađ halda nćsta stjórnarfund ţann 25 sept. 2006.
Fundi slitiđ kl 19:30 - EG
Til baka í fundargerđayfirlit