OgVodafone

Toyota

 

Fundargerð stjórnar SAMKÓP.

Fundur haldinn þriðjudaginn 21. mars 2006 kl. 18:30 í Hjallaskóla.


Mætt voru: Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Jón Svavarsson (JS), Jóhanna M. Baldursdóttir (JB), Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (JE) og Hrefna Gunnarsdóttir (HG) sem ritar fundargerð þessa. Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ) og Pétur Valdimarsson (PV) höfðu tilkynnt forföll.

Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:


  1. Heimasíða SAMKÓP – Fyrir fundinum lá tillaga TMÞ að bréfi til tölvudeildar Kópavogsbæjar (sbr. tölvupóstur 20.03.06). Tillagan var rædd og TMÞ falið að gera nokkra breytingar á bréfinu, sem síðan yrði afgreitt frá stjórn með tölvupósti á næstu dögum. TMÞ var jafnframt falið að óska eftir fundi með starfsmönnum tölvudeildar við fyrsta tækifæri.

  2. Slagorð og kynning í Kópavogspósti (KP) – Samþykkt að fara af stað með slagorð í KP við fyrsta tækifæri, þó svo að ekki verði búið að ná samkomulagi við styrktaraðila.

  3. “Við vökum yfir þér” – Samþykkt að leita til annars aðila varðandi styrk við endurnýjun símtækja, þar sem svörun hefur verið dræm frá þeim aðila upphaflega var leitað til. Ítrekað enn og aftur mikilvægi þess að hraða þessu máli og klára vinnu við gerð bæklings. JS mun hafa samband við 2 prentsmiðjur, sem buðu lægst s.l. vor, og kanna hvort tilboðin standi óbreytt.

  4. Önnur mál:
*Fundarstjórnun og fundarsköp – Samþykkt að kaupa bækur (ljósrit) frá UMFÍ varðandi fundarsköp, eina fyrir hvern skóla. Bókin verður gjöf frá SAMKÓP til foreldrasamstarfs í viðkomandi skóla og jafnframt lagt til að hún verði geymd á bókasafni skólans (kveðja á innanverðri kápu), þar sem hún verður aðgengileg foreldrum, nemendum og starfsmönnum skólans. Jafnframt samþykkt að kaupa bækurnar Fundarsköp og Félagsmálaspjöll, ásamt fræðslumyndbandi “Laus við skrekkinn” fyrir SAMKÓP og verður þetta efni lánað til foreldar. HG mun fara á skrifstofu UMFÍ og kaupa þetta.
* Fundur með bekkjarfulltrúum í Salaskóla 28.03.06 – Fram koma að HG og RÁ munu ásamt Helgu Margréti verkefnisstjóra H&S sitja fund FF Salaskóla með bekkjarfulltrúum n.k. þriðjudagskvöld.

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 19:45

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 20-Apr-2006 @ 05:12 GMT.