OgVodafone

Toyota

 

Fræðslufundur bekkjarfulltrúa við grunnskóla Kópavogs

haldinn þriðjudaginn 26. september 2006 kl. 20:00 í Hjallaskóla.


Skráðir fundargestir voru 52 frá 8 af 10 grunnskólum Kópavogs, þar á meðal var bekkjarfulltrúi frá nýjasta skóla bæjarins, Hörðuvallaskóla. Auk fulltrúa Hörðuvallaskóla voru skráðir fulltrúar frá Hjallaskóla (16), Kársnesskóla (10), Snælandsskóla (8), Digranesskóla (5), Salaskóla (5), Smáraskóla (4) og Vatnsendaskóla (3).


Á fundinum ræddi Helga Margrét vítt og breitt um foreldrasamstarfið, hlutverk bekkjarfulltrúa og hin ýmsu verkefni og aðstæður sem upp geta komið í tengslum við samstarf foreldra. Hún sagði okkur frá áhrifaríkum aðferðum, t.d. "lifandi boðskorti" þar sem foreldrar skipta t.d. 20-24 manna bekk niður í 4 hluta og 4 foreldrar taka að sér að fara heim til 4-5 nemenda og boða til funda eða annarra viðburða. Hún sagði frá því hversu áhrifaríkt það er að hver og einn fái sitt hlutverk, t.d. að koma með kaffi á fundinn, til að tryggja að viðkomandi mæti eða í versta falli fái einhvern úr fjölskyldunni til að mæta fyrir sig. Sá aðili gæti t.d. verði afi eða amma.

Hún talaði um mikilvægi þess að góð tengsl væru á milli bekkjafulltrúa og fulltrúa foreldraráða - enda væru "bekkjarfulltrúar reykskynjarar fyrir foreldraráðin sem væru í hlutverki slökkviliðsins".

Í lok fundarins var fundarmönnum skipt upp í 6 hópa sem fengu það verkefni að velta fyrir sér hvað væri hægt að gera til að efla samstarf foreldra - fá fólk til að taka þátt og auka samtakamátt foreldra.

Ýmsar ábendingar komu frá hópunum - nokkra punkta er að finna á hér heimasíðu SAMKÓP (sjá frétt frá fundinum) og einnig er þar upprifjun á punktum Helgu Margrétar frá fundi hjá SAMKÓP s.l. vor. Hún talaði um mikilvægi þess að góð tengsl væru á mili bekkjafulltrúa og fulltrúa foreldraráða - enda væru "bekkjarfulltrúar reykskynjarar fyrir foreldraráðin sem væru í hlutverki slökkviliðsins".

Ýmsar ábendingar komu frá hópunum - m.a.:

  • bekkjarfulltrúar í sama árgangi hafi samvinnu
  • koma á vinahópum barna í yngstu bekkjunum, þar sem börnin eru það ung að foreldrarnir fylgja með
  • koma á vinahópum foreldra í eldri bekkjum
  • nýta mannauð í foreldrahópnum t.d. í tengslum við fyrirlestra og/eða starf í félagsmiðstöðvum (t.d. foreldrar með mótorhjóladellu og/eða veiðidellu)
  • nýta sambönd við foreldra t.d. í tengslum við starfskynningar eldri bekkinga
  • foreldrar hittist og eigi skemmtilega stund (rætt um veitingar, mat og drykk, og einnig skutu upp kollinum hugmyndir um heimsókn á hverfisbarinn að loknu foreldrarölti)- jafnvel í heimahúsum og bjóði kennaranum með
  • námshópar fyrir samræmd próf - foreldra og nemendur leggist yfir skólabækurnar og læri saman - í lokin er haldin \"Gettu betur\"-keppni úr námsefniu (t.d. samfélagsfræðinámsefni)
  • vinahópar miðstig - jafnvel útfært á þann hátt að hópurinn býr til og æfir leikrit með aðstoð foreldra
  • öflugt upplýsingastreymi - tölvupóstur og minnispunktar frá fundum
  • nýta/efla tengsl við íþróttafélög og félagsmiðstöðvar
  • efla tengsl milli foreldra og foreldraráða
  • opna skólana fyrir foreldrum - t.d. í ákveðinni viku sé gert ráð fyrir að foreldrar heimsækji bekkinn
  • hugmynda- og ábendingakassar

Fram kom ánægja bekkjarfulltrúa fyrir að fá að hitta bekkjarfulltrúa frá öðrum skólum. Rætt var um öldugang í foreldrasamstarfinu þar sem skiptust á hæðir og lægðir og því væri mikilvægt að búa til hefðir og formfesta starfið svo það standi ekki og falli með einstaka foreldrum.

Rætt var um handbók Maraskóla - en hlutverk hennar er að vera stuðningur fyrir foreldrafélög og foreldraráð til að byggja upp sambærilega handbók aðlagaða að viðkomandi skóla. Þegar búið er að útbúa slíka handbók fyrir skólann er mikilvægt að gera hana aðgengilega fyrir alla á heimasíðu skólans.

Fundi var slitið kl. 22:10


Punktar frá Helgu Margréti, verkefnisstjóra Heimilis og skóla í tengslum við fulltrúaráðsfund í maí 2006:

Foreldrasamstarf

Virkir foreldrar – betri skóli

“Skóli fyrir alla” á vel við í þessu tilfelli þar sem við teljum að skólinn sé fyrir foreldra líka – þ.e. að samstarfið á milli foreldra og skólastarfsmanna sé svo gott að oft á tíðum sést ekki munur á því hvor er hvað.
Skólafærninámskeið fyrir foreldra 6 ára barna eru gott dæmi um samstarf hinna ýmsu aðila - kennara, starfsmanna, skólastjórnenda, fulltrúa foreldrafélags og nemenda eldri bekkja. Góð samvinna og vilji til að taka sem best á móti foreldrum skiptir miklu máli og mikilvægt er að allir komi að borði með jákvæðni og opnum hug til að takast á við það stórgóða verkefni að byggja upp börnin okkar til að þau geti orðið að góðum og virkum þjóðfélagsþegnum framtíðarinnar.

'''Heimili og skóli
Landssamtök foreldra'''
• frjáls félagasamtök með beinni aðild foreldra og foreldrafélaga
• samtök foreldra barna á leikskóla -, grunn- og framhaldsskólaaldri (0-18 ára)
• samtök sem starfa á landsvísu (svæðaráð)
• skrifstofa samtakanna er að mestu rekin á árgjöldum félagsmanna

S A F T . is
SAMFÉLAG
FJÖLSKYLDA
» TÆKNI
• Evrópuverkefni um örugga netnotkun
• Skoðið netheilræðin á www.saft.is

Markmið Heimili og skóla
• Að efla foreldra í uppeldishlutverki sínu og veita þeim stuðning og hvatningu til virkrar þátttöku í skólasamfélaginu
• Að stuðla að starfsemi og aukinni virkni foreldraráða og foreldrafélaga í skólum landsins
• Að styrkja aðkomu foreldra og ákvarðanatöku og stefnumótun innan skólasamfélagsins
• Að miðla upplýsingum til foreldra svo að þeir geti betur sinnt uppeldi barna sinna og skólagöngu þeirra
• Að veita foreldrum ráðgjöf um réttindi og skyldur og standa fyrir útgáfu sem styrkir og styður foreldra í hlutverki sínu

Hvernig getum við haft áhrif
Þrír hópar mynda skólasamfélagið í hverjum skóla, þ.e. nemendur, starfsfólk skólans og foreldrar og er mikilvægt að þessir hópar vinni vel saman að mótun þess samfélags og þeirra umgengnishátta sem eiga að einkenna samskipti innan skólans og utan. Til þess að það gangi þarf að ræða reglulega um áherslur og komast að samkomulagi um meginviðmið.
HMG benti á mikilvægi þess að leita eftir áliti nemenda/nemendaráðs á því sem betur megi fara.

'''HVAÐ VILL SKÓLINN?
HVER ER SÉRSTAÐA SKÓLANS?
HVAR HEYRIST RÖDD FORELDRA?
HVER HLUSTAR?'''

Geta skólar haft eftirlit með gæðum þeirrar þjónustu sem þeir veita?
Það þykir eðlilegt í nútímasamfélagi að þeim sem hagsmuna eiga að gæta sé gert kleift og skylt að taka afstöðu til mála sem þá varða og næst á eftir nemendum eru foreldrar stærsti hópurinn sem skólinn þjónar.
Þess vegna er mikilvægt að foreldrar þekki skipulag skólamála í sinni sveit og viti hvernig þeir geta haft áhrif á gang mála

Samstarf heimila og skóla
• Skipulag foreldrastarfs þarf að vera gott
– Foreldraráð, foreldrafélag, bekkjarfulltrúar, svæðasamtök foreldra- hefðað verklag (mikilvægt að koma sér upp góðum handbókum/gögnum – þ.e. nýir aðilar í stjórn foreldrafélags geti auðveldlega áttað sig á því hvernig/hvað/hvenær framkvæmdin hefur verið fram til þessa – Handbók Mararskóla er góður grunnur til að byggja á! (hana er hægt að fá í word skjali hjá SAMKÓP)
• Gott upplýsingaflæði - Fréttabréf
• Samskipti á Mentor – Virk heimasíða
• Gagnkvæmt upplýsingaflæði
• Foreldrar tali vel um skólann

Jákvæð samvinna mikilvæg
• Samskipti við skóla geta verið margvísleg en samstarfið þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu, trausti, samábyrgð og gagnkvæmu upplýsingaflæði. Eðlilegt er að samskiptin einkennist af ákveðinni verkaskiptingu þar sem samkomulag er um verkefni og skyldur foreldra, nemenda og kennara.

Hvernig fer samstarfið fram

• samstarf um barnið við kennarann
• samstarf innan bekkjarins við aðra foreldra
• samstarf bekkjarfulltrúa og við foreldrafélagið
• samstarf foreldrafélags og foreldraráðs
• samstarf foreldraráðs við skólastjóra
• svæðaráð foreldra – fulltrúi í fræðslunefnd

Skólinn er fyrir nemendur
• Samstarf um börn
• Hvað hefur áhrif á líðan barna í skólum?
• Hvað má bæta í skólaumhverfi barna
• Innlendar og erlendar kannanir sýna að námsárangur barna ræðst að verulegu leyti af þáttum sem liggja utan skólans sjálfs. Samvinna við heimilin er virkasta aðferðin til að bæta líðan og námsárangur.

Hvað á maður að gera?
• Er heimasíðan virk í þínum skóla – upplýsingar uppfærðar reglulega – koma upp netföngum t.d. foreldrafélag@xskoli.is og foreldraráð@xskoli.is
• Hver er netnotkun foreldra barna í bekknum – hvernig er foreldrahópurinn
• Hver er viðvera hjúkrunarfræðings
• Hver sér um forvarnir í skólanum – félagsstarf í skólum. - lífsleikni og kynfræðsla á unglingastigi??
• Agaplan – skólareglur
• Eineltisáætlun (bekkjarbragur)
• Hver er sérstaða skólans

Tengsl bekkjarfulltrúa við foreldrafélag
• Mynda vettvang fyrir foreldra að hittast og stuðla að auknu samstarfi foreldra, kennara og nemenda í bekk.
• Koma því á framfæri sem betur má fara
• Sjá um virka upplýsingamiðlun
• Tengiliðir við umsjónarkennara og foreldra
• Bekkjartenglar mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins sem hittist 2 – 3 á ári.
• Bekkjarfulltrúar eru kosnir til tveggja ára í senn

Viðfangsefni
• öryggi barna í skólanum og við skólann
• hvenær opnar skólinn?
• aðbúnaður nemenda í skólanum
• gæsla í frímínútum –
• hlutverk umsjónarkennara skilgreint
• að koma barni úr skóla í dægradvöl
• mötuneyti – næðisstund
• forvarnir – RÁ benti á þá hugmynd að foreldrafélag marki sér forvarnastefnu í samvinnu við skólann

Dæmi um störf bekkjarfulltrúa Hlutverk bekkjarfulltrúa er m.a. að leggja sitt af mörkum til að skapa aðstæður sem auka vellíðan barna í skólanum.
• Kársnesskóli – fjöldi í bekk – samstaða foreldra kom í veg fyrir sameiningu bekkja
• Vinnufriður og bekkjarbragur – stemmningin í bekknum
• Upplýsingar um bakland nemenda – bakgrunnsupplýsingar nemenda
• Námshópar – þátttaka foreldra í námi barnanna
• Mötuneyti, búningsklefar, sparkvöllur o.fl.

Hindranir í samstarfi
• Fordómar og misskilningur
• Ótti við að mistakast og vera gagnrýndur
• Samstarf snýst um neikvæða þætti
• Neikvæð reynsla foreldra af skólum
• Ýmis vandi foreldra
• Mikil vinna foreldra
• Mikil vinna kennara
• Kennara skortir þekkingu og reynslu til að vinna með foreldrum
• Ólík viðmið

Af hverju foreldrasamstarf?
• Hvern telur þú vera ávinning af foreldrasamvinnu og starfi bekkjarfulltrúa
• Hver er ávinningur af samstarfi heimila og skóla

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 25-Jan-2007 @ 05:28 GMT.