OgVodafone

Toyota

 

Fundargerð stjórnar SAMKÓP.

Fundur haldinn fimmtudaginn 27. apríl 2006 kl. 19:45 í Snælandsskóla.


Mætt voru: Tryggvi M. Þórðarson (TMÞ), Jóhanna M. Baldursdóttir (JB), Rannveig H. Ásgeirsdóttir (RÁ) og Hrefna Gunnarsdóttir (HG) sem ritar fundargerð þessa. Jón Svavarsson (JS) sat seinni hluta fundarins. Jóna Guðný Eyjólfsdóttir (JE) hafði boðað forföll og Pétur Valdimarsson (PV) var fjarverandi.

Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:


1. Fundargerð frá 6. apríl 2006 – samþykkt án athugasemda, en hana er að finna á www.tryggvi.org/samkop.

2. Aðalfundur SAMKÓP – ýmis mál í tengslum við undirbúning aðalfundar rædd. Ákveðið að halda fundinn miðvikudaginn 10. maí 2006 og verður hann líklega haldinn í Hjalla- eða Snælandsskóla. Á undan fundinum verður boðið til sérstakrar móttöku vegna afhendingar OgVodafone á nýjum símtækjum auk þess sem nýr röltbæklingur verður kynntur og ný heimasíða opnuð. Breytingar á lögum félagsins – breytingar ræddar og ákveðið að HG færi inn tillögur fundarins og skoðaði jafnframt dæmi um samþykktir einkahlutafélags varðandi dagskrá aðalfundar. Tillögurnar verða síðan afgreiddar í umfjöllun með tölvupósti og samþykktar með tölvupósti áður en fundarboð verður sent út. Erindisbréf fulltrúa foreldra í skólanefnd – RÁ og PV hafa verið að velta á milli sín vinnuskjali með drögum að erindisbréfi. Ákveðið að HG leiti til Bergþóru hjá SAMFOK til að kanna hvort hægt væri af fá afrit af erindisbréfi þeirra til að hafa til hliðsjónar. Framboð til stjórnar – Í ljósi væntanlegra breytinga á lögum SAMKÓP má gera ráð fyrir að helmingur stjórnarmanna verði kjörinn til eins árs og helmingur til tveggja ára. Rætt var um nauðsynlega og eðlilega endurnýjun í stjórn samtakanna, til að tryggja virkni stjórnarmanna. Fundarboð – ákveðið að aðalfundurinn verði ekki auglýstur í Kópavogspóstinum – heldur verði bréf sent til formanna allra FR og FF í Kópavogi, samhliða boðsbréfi á “Við vökum yfir þér” mótttöku. Jafnframt verði aðrir foreldrar boðaðir með tölvupósti auk þess sem auglýsingar verða settar upp á heimasíðu. Drög að uppgjöri – frestað vegna fjarveru PV. Skráningu þátttöku - farið verður fram á fyrirfram þátttökuskráningu m.a. vegna kaupa á veitingum fyrir fundinn.

3. “Við vökum yfir þér” – RÁ mun senda drög að bæklingi á stjórn SAMKÓP og tryggja að prentun bæklings verði lokið tímanlega fyrir aðalfundardag. Leitað verður til Litlaprents varðandi prentun bæklings og einnig prentun veggspjalda, sem RÁ mun hanna og vinna, en við það verk mun hún njóta aðstoðar frá JS. Jafnframt mun RÁ kanna verð á borðum með áletruninni “Við vökum yfir þér! www.samkop.is”. - sjá einnig fylgiskjal 1, varðandi skipulag 10. maí 2006.“ Drög að fundargerð frá samráðsfundi verður send á stjórn SAMKÓP, líklega á morgun, og verða nokkrir almennir fréttapunktar færðir inn á heimasíðu SAMKÓP.

4. Slagorð í Kópavogspósti (KP) – Ákveðið að fyrsta slagorðið verði birt í næsta KP og verði “Við vökum yfir þér! www.samkop.is.” Gert er ráð fyrir að með slagorðinu birtist logo styrktaraðila. Jafnframt er gert ráð fyrir að á heimsíðu SAMKÓP verði til staðar kynning á verkefninu og leitast verður eftir því að á heimasíðu styrktaraðila verði einnig tilvísun til þessa “slagorða” verkefnis með tilvísun til heimasíðu SAMKÓP. Annað slagorðið verður “Engan hausverk – notum hjálma! www.samkop.is” og verður birt grein varðandi mikilvægi hjálmanotkunar samhliða notkun reiðhjóla, hlaupahjóla, bretta og línuskauta.

5. Skólanefnd – Umræðu frestað vegna fjarveru PV.

6. Fundur með fulltrúum framboðslista í væntanlegum sveitarstjórnarkosningum – RÁ sagði frá því að leitað hefði verið til hennar til að stýra umræðufundi um skólamál með fulltrúum framboðslista sem haldinn verður 16. maí í Félagsheimili Kópavogs. Forsvarsmenn fundarins eru kennarar við grunnskóla Kópavogs (c/o Sigurður Haukur) og býðst SAMKÓP að taka þátt í fundinum. Stjórn SAMKÓP fagnar þessu tækifæri og mun RÁ færa stjórninni nánari fréttir af skipulagi og aðkomu SAMKÓP. Jafnfram var sú hugmynd rædd að SAMKÓP sendi spurningalista til framboða með ósk um viðhorf þeirra og forgangsröðun.

7. Heimasíða – Ný heimasíða verður opnuð formlega á aðalfundardegi þann 10. maí 2006 – umsjón með framkvæmdinni er í höndum TMÞ. JS og TMÞ munu útbúa nýjan myndaramma efst á síðunni, sem nær yfir hana alla. Mikilvægt er að stjórn SAMKÓP skoði vel það efni sem nú þegar er komið inn á www.tryggvi.org/samkop m.t.t. og komi með tillögur að viðbótarefni.

8. Starfsreglur SAMKÓP – Starfsreglur, sem samþykktar voru á fundi SAMKÓP 30. janúar voru yfirfarnar m.t.t. reynslu s.l. mánaða. Ákveðið að breyta 8. tl. m.t.t. þess að frekar verði um samráðsfundi FF og FR að ræða auk þess sem almennir foreldrar verði hvattir til þátttöku, auk þess sem allir skólar í Kópavogi verði hvattir til að taka virkan þátt í stjórnun og starfi SAMKÓP.

9. Önnur mál

  • Aðalfundur Heimilis og skóla 28. apríl – Fram koma að RÁ mun ganga úr stjórn samtakanna á þessum fundi og í framhaldinu mun hún einbeita sér enn frekar að foreldrasamstarfi í Kópavogi. Jón Ólafur Halldórsson, formaður foreldraráðs Kópavogs, hefur samþykkt að gefa kost á sér í stjórn Heimilis og skóla.

  • Fundur fulltrúaráðs Heimilis og skóla 29. apríl – HG mun mæta á fundinn fyrir hönd SAMKÓP, en fulltrúaráðið var stofnað síðast liðið haust og er þetta annar fundur ráðsins.

  • Forvarnarráðstefna ÍTK í samstarfið við SAMKÓP 15. maí kl. 17 – 19 í Salnum – sagt var frá því að kynning meðal foreldra hófst á mánudag þegar dagskrá var dreift á samráðsfundi foreldrarölta í framhaldi var leitað til allra foreldrafélaga varðandi dreifingu.

  • Fulltrúaráðsfundur SAMKÓP – ákveðið að fundurinn verði mánudaginn 29. maí og til hans verði boðaðir allir fulltrúar foreldrafélaga og foreldraráða í Kópavogi. Helga Margrét, verkefnisstjóri hjá Heimili og skóla, verður með erindi á fundinum og verður áherslan á samvinnu FF og FR, auk þess lagt verður á ráðin varðandi foreldrasamstarf í Kópavogi skólaárið 2006-2007.

  • Fréttablað SAMKÓP – JS sagði frá hugmyndum sínum um að endurvekja fréttablað SAMKÓP í einhverri mynd og voru hugmyndir hans um að samtökin gæfu út eitt fréttablað á komandi starfsári. Óskað eftir því að JS komi með sýnishorn af eldra fréttablaði á fund SAMKÓP.

  • Saga SAMKÓP – Rætt um að leita til fyrri stjórnarmanna SAMKÓP varðandi sögu samtakanna o.fl. – c/o HG og RÁ.

  • Gögn SAMKÓP - Ákveðið að óska eftir samningi við Héraðsskjalasafn Kópavogs varðandi vistun gagna samtakanna. Fyrir liggja ýmis skjöl sem PV afhenti HG á diski fyrr í vetur og verður unnið að því að prenta þau út og skrá. Áfram verður unnið að því að leita eftir eldri gögnum SAMKÓP.

  • Foreldrafundur í Smáraskóla – Fram kom að þriðjudaginn 25. apríl var haldinn fjölmennur foreldrafundur í Smáraskóla. Þar mættu um 130 foreldrar nemenda úr 7. – 10. bekk – frábær samstaða þetta og til fyrirmyndar!

Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 22:05

Í framhaldi af fundinum voru tillögur um lagabreytingar afgreiddar með tölvupósti og endanleg tillaga stjórnar send með fundarboði 2. maí.

Starfsreglum stjórnar, frá 30. janúar 2006, var ekki breytt þar sem bakkað var með hugmyndir varðandi niðurfellingu fulltrúaráðsins. Ný stjórn mun taka starfsreglurnar til endurskoðunar á komandi starfsrári.

Til baka í fundargerðayfirlit

Print - Sidebar - SearchWiki - Login
Yfirleitt er afritun heimil sé uppruna getið (nánar um höfundarrétt)  —  Póstur sendist til samkop hjá samkop.is
Síðast uppfært 06-May-2006 @ 11:17 GMT.