Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar.
Á fræðslufundi SAMKÓP sem haldinn var í Smáraskóla í kvöld fengu áhugasamir foreldrar meðal annars að kynnast áhrifum mismunandi uppeldishátta.
Á fundinn mættu 56 áhugasamir gestir:
- 11 foreldrar úr Snælandsskóla, þar af voru a.m.k. 3 þeirra einnig foreldrar barna á leikskólanum við Furugrund
- 10 foreldrar úr Smáraskóla
- 9 foreldrar úr Lindaskóla
- 6 foreldrar úr Hörðuvallaskóla
- 5 foreldrar úr Hjallaskóla
- 3 foreldrar úr Salaskóla
- 2 foreldrar úr Vatnsendaskóla
- 2 foreldrar úr Digranesskóla
- 1 móðir úr Kópavogsskóla
auk 3 foreldra frá leikskólunum við Efstahjalla og Kópasteini, 3 foreldra úr nágrannasveitarfélögunum og einnar ömmu.
Fyrirlesarar voru Dr. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor, Hrund Þórarinsdóttir og Ragný Þóra Guðjohnsen, en þær starfa við rannsóknarsetur um lífshætti barna og ungmenna. Þær fjölluðu um vænlegar leiðir foreldra til að hlúa að þroska barna og unglinga og hvernig vinna megi með ágreiningsmál.
Til grundvallar var nýútkomin bók Sigrúnar Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar en bókin byggir á rannsóknum hennar síðastliðin 20 ár á sviði uppeldis og menntunar.
Virðing og umhyggja. Ákall 21. aldar.
(bls. 236 - 237)
Uppeldishættir foreldra - samkvæmt D. Baumrind
Leiðandi foreldrar krefjast þroskaðrar hegðunar af barninu/unglingnum og taka vel á móti hugmyndum þess/hans. Þeir setja skýr mörk um hvað er tilhlýðilegt og hvað ekki en leggja áherslu á að nota útskýringar og hvetja börnin til að skýra út sjónarmið sín. Þeir eru hvorki uppáþrengjandi né setja börnunum stólinn fyrir dyrnar. Þeir sýna börnum einnig mikla hlýju og uppörvun.
Eftirlátir foreldrar bregðast einnig vel við hugmyndum barna sinna, leyfa töluverða sjálfsstjórn og sýna þeim hlýju. Aftur á móti setja þeir börnunum ekki skýr mörk. Þeir eru undanlátssamir og forðast beina árekstra.
Skipandi foreldrar stjórna börnunum með boðum og bönnum og refsa þeim fyrir misgjörðir. Reglur eru skýrar. Þeir vænta þess að skipunum þeirra sé hlýtt án útskýringa. Þeir nota því sjaldan röksemdir og sýnar börnunum litla hlýju og uppörvun.
Afskiptalausir foreldrar ala börnin upp í stjórnleysi, setja ekki mörk og gera ekki kröfur.
Ræðum saman: Heima
Sigrún Aðalbjarnardóttir og Árný Elíasdóttir (1992)
Kennsluleiðbeiningar og foreldrahandbók. Reykjavík, Námsgagnastofnun
- Hver er vandinn? Hvers vegna er það vandi?
- Hvernir líður A (B)? Hvers vegna líður A (B) þannig?
- Hvernig geta .... leyst vandann? Af hverju er það góð leið....?
- Hver er besta leiðin? Af hverju er það góð leið?
- Hvernig liði A og B ef það yrði gert? Hvers vegna?
- Hvernig geta... vitað að vandinn er leystur?
Til baka í fundargerðayfirlit