Fundargerð stjórnar SAMKÓP.
Fundur haldinn þann 4. nóvember kl. 18:00 – 20:00.
Staður: Smáraskóli, Kópavogi.
Mættir: Erlendur Geirdal, Hafdís B. Þorsteinsdóttir, Helena Árnadóttir, Sigrún Þorleifsdóttir, Kristín Egilsdóttir, Anna María Sigurðardóttir.
Fjarverandi: Varamennirnir, Pétur Valdimarsson / Lindaskóla, María Helen Eiðsdóttir / Vatnsendaskóla, Benedikt Th. Jónatansson / Digranesskóla og Björn Arnarson / Hörðuvallarskóla.
Eftirfarandi var til umræðu á fundinum:
Í upphafi fundar var rætt um að fundartímar stjórnar yrðu framvegis fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði vetrarins kl. 18:00. Næsti fundur verður í Hjallaskóla í desember og fundað verður í Snælandsskóla í janúar. Rætt var um að samhliða fundargerð myndi ritari halda verkefnalista yfir þau verkefni sem meðlimir stjórnar tækju að sér milli funda.
Dagskrá fundarins var eftirfarandi:
1. Fundargerðir aðalfundar og síðasta fundar stjórnar SAMKÓP lagðar fram til samþykktar
Fundargerðir aðalfundar og síðasta stjórnarfundar voru lagðar fram til samþykktar. Auk þess var lögð fram til samþykktar fundargerð frá því fundað var með fulltrúum stjórna foreldrafélaganna þann 20. október síðast liðinn. Ekki voru gerðar athugasemdir við fundargerðirnar og voru þær samþykktar.
Rætt var um að framvegis yrði sá háttur hafður á að fundargerðir yrðu sendar stjórn í tölvupósti og óskað eftir að athugasemdir yrðu gerðar og samþykki veitt með staðfestingu í tölvupósti - Þá væri eins fljótt og kostur er, hægt að vista fundargerðir á heimasíðu SAMKÓP.
2. Fundargerð fundar með fulltrúum frá grunnskólum í Kópavogi
(Sjá lið 1.)
3. Starfsreglur SAMKÓP
Formaður fór yfir starfsreglur SAMKÓP. Rætt var um að hafa starfsreglurnar aðgengilegar á forsíðu heimasíðu SAMKÓP. Það eru nokkur atriði í starfsreglunum sem þarnast endurskoðunar og munu Kristín og Sigrún leggja fram tillögu að endurskoðaðri útgáfu á næsta fundi.
4. Fréttir af fundum skólanefndar
Erlendur, fulltrúi SAMKÓP í skólanefnd, fór yfir helstu atriði sem rædd hafa verið á fundum skólanefndar að undanförnu.
5. Fyrirspurnir til skólanefndar / skólaskrifstofu til framlagningar á næsta fundi skólanefndar
Formaður lagði fram tillögu um að fyrirspurn yrði send til skólanefndar og óskað eftir upplýsingum er varða skólana svo hægt sé að bera saman milli skóla þátttöku í skólamat, dægradvöl, kennslustundafjölda og fleira. Samþykkt var að tillagan yrði send skólanefnd.
6. Fréttir af fundi heimilis og skóla
Erlendur sótti, fyrir hönd SAMKÓP, fulltrúaráðsfund heimilis og skóla þann 30. október síðast liðinn og gerði grein fyrir því helsta sem rætt var á fundinum. Áhugavert var m.a. að fá innsýn í starf foreldrafélaga á landsbyggðinni og hvaða mál fólk þar er að glíma við þar í foreldrastarfinu.
7. Áherslurnar í vetur, framhaldsumræða frá síðasta fundi
Tekin ákvörðun um eitt verkefni og ákveðið hvernig verkefnið verður unnið.
Tekin var ákvörðun um að aðaláherslan í vetur myndi verða á að virkja og efla tengslanetið sem foreldrasamstarfið byggir á. Að ná að mynda upplýsingaboðleiðir til og frá bekkjarfulltrúum til stjórna foreldrafélaganna og frá stjórnum foreldrafélaganna við skólaráðin og til SAMKÓP og frá SAMKÓP til heimilis og skóla og skólanefndar Kópavogs. Samhliða verður svo skoðað hvort veita má hvatningarverðlaun og vekja athygli á því sem er jákvætt og vel er gert í skóla- og foreldrastarfinu.
8. Stjórnir foreldrafélaga skóla í Kópavogi, uppfærsla á heimasíðu SAMKÓP
Rætt var um upplýsingarnar á heimasíðunni. Það er mikilvægt að koma sem fyrst að uppfærðum upplýsingum um stjórn og stjórnir foreldrafélaganna og aðra tengiliði á heimasíðunni. Hafdís og Erlendur tóku að sér að fara yfir fyrir næsta fund.
9. Önnur mál
Rætt var um og samþykkt að hætta, að minnsta kosti tímabundið, auglýsingum í Kópavogspóstinum sem SAMKÓP hefur birt reglulega undanfarið.
Önnur mál voru ekki á dagskrá og var fundi slitið laust fyrir kl. 20:00. - SÞ
Til baka í fundargerðayfirlit