|
|
Lengi muna börninÁ heimasíðu Vímulausrar æsku má meðal annar finna kafla bókinni "102 atriði til umhugsunar fyrir foreldra" eftir Sæmund Hafsteinsson í samvinnu við Jóhann Inga Gunnarsson. Bókin er uppseld en vegna fjölda áskorana hefur hún verið sett inn á vefinn með það að leiðarljósi að fólk geti prentað út kafla til að lesa. Í lokaorðum bókarinnar segir: "Nú er allt komið til skila og þú hefur væntanlega kynnt þér vel umhugsunaratriðin okkar, 102 að tölu. Nú er komið að þér! Hafirðu virkilega lagt á þig heilabrot við hvert þessara atriða má gera ráð fyrir að þú hafir styrkst sem uppalandi. Eftir lestur bókarinnar ætti ekki að fara á milli mála að ábyrgðin er þín. Hafir þú ákveðið að læra eitthvað af lestrinum muntu örugglega hafa gert það. Hafir þú hins vegar ákveðið að læra ekkert verður svo að vera. Við höfum líkt barnauppeldi við garðyrkju. Til að ná árangri þarf rétt hugarfar og metnað, við þurfum að nálgast viðfangsefni okkar af virðingu og nærgætni. Við erum mikilvægustu persónurnar í lífi barna okkar og eigum að vera það. Ábyrgðin er mikil því að okkar eigin aðferðir í samskiptum eru ekki einkamál, við erum sú fyrirmynd sem mótar börnin okkar mest. Okkar hegðun í dag verður þeirra á morgun. Það sem við gefum þeim nú fáum við aftur í einhverri mynd síðar. Okkur er hollt að minnast þess stöku sinnum að einhvern tímann kemur að því að börnin okkar verða fullorðin. Þá kemur afrakstur starfs okkar í ljós. Hvernig vilt þú að börnin þín muni eftir þér þegar þar að kemur? Vitanlega geng ég út frá því sem vísu að þú kjósir að vita af ást og hlýhug þinna nánustu þegar aldurinn færist yfir. Fortíðinni verður aldrei breytt. Það eina sem við getum gert til að tryggja okkur góða uppskeru er að vanda okkur nú og byrja strax í dag. Gefum börnum okkar stundir sem verða þeim dýrmætar í minningunni. Þau eru og verða fulltrúar okkar meðal komandi kynslóða og því skulum við koma fram við þau af virðingu og ákveðni." Hér er sannkallaður gullmoli á fer sem við hvetjum foreldra til að skoða. |