|
|
Skólafatnaður?Í fundargerð frá 9. fundi Fjölskyldunefndar þann 5. janúar 2006 segir frá því að Ólöf Pálína Úlfarsdóttir kynnti álitsgerð sína um innleiðinu skólafatnaðar, er hún vann fyrir nefndina í október 2005. Þar segir: "Ólöf skoðaði hvernig til hefur tekist að innleiða skólafatnað í þeim skólum sem það hefur verið gert og ræddi við skólastjóra þeirra skóla. Einnig lagði hún fyrir nemendur könnun í tilteknum borgarhlutum Reykjavíkur. Niðurstaða þeirrar upplýsingaröflunar var að meirihluti nemenda reyndist neikvæður gagnvart skólafatnaði meðan skólastjórnendur sögðu fatnaðinn hafa reynst vel og haft jákvæð áhrif á skólastarf. Ólöf taldi að, í allri umræðu um hvort skólafatnaður reynist vel eða ekki, skipti miklu máli hvernig skólinn sé samsettur. Hins vegar hafi erlendar kannanir sýnt að skólafatnaður leiði ekki endilega til bætts námsárangurs eða hegðunar og líðan í skóla. Jafnvel hafi verið bent á að skólafatnaður geti latt sköpunargáfu og frumkvæði nemenda vegna þeirrar formfestu og reglu er felist í skólafatnaði. Það er álit Ólafar að jákvæð áhrif skólafatnaðar geti komið fram í fjárhag fjölskyldna og jafnvel geti dregið úr einelti í skólum því nemendur í skólafatnaði verði frekar hluti af heildinni. Í umræðum eftir kynningu Ólafar var rætt um mikilvægi þess að kostnaður við skólafatnað yrði vera í lágmarki fyrir fjölskyldur til að gera öllum kleift að kaupa slíkan fatnað. Fulltrúi Heimila og skóla – landssamtaka foreldra í nefndinni sagði að ekki ríkti einhugur um málið hjá samtökunum. Mikilvægt væri að foreldar sjálfir hefðu val um hvort taka ætti upp skólafatnað og að hann yrði ekki innleiddur með einhæfum reglum. Nú séu íslenskir skólar að prófa sig áfram með skólafatnað sem sé af hinu góða. Frumkvæði þyrfti að koma frá foreldrunum sjálfum sem hver skóli ynni síðan áfram með, hver fyrir sig. Í umræðu um málið kom fram sú skoðun að hlutverk nefndarinnar væri að safna upplýsingum en ekki endilega að koma með afstöðu um hvort rétt eða rangt sé að taka upp skólabúninga. Fulltrúar í nefndinni lögðu á það áherslu að nefndin hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort rétt sé að hvetja til notkunar skólafatnaðar heldur hafi hún viljað kynna sér málið og því kallað eftir álitsgerð sem nú sé lokið. Einnig kom fram sú skoðun að mikilvægt væri að ræða um skóla-fatnað frekar en skóla-búning. Ákveðið að skýrslan yrði birt á opnu vefsvæði nefndarinnar og senda menntamálaráðuneytinu tilkynningu um að skýrslan verði birt." Aftur til baka í Hugmyndabanka |