"ENGAN HAUSVERK - NOTUM HJÁLMA!"
Annað slagorð SAMKÓP, "ENGAN HAUSVERK - NOTUM HJÁLMA!", birtist á blaðsíðu 5 í Kópavogspóstinum 31. maí 2006.
Með slagorðinu eru vísað til þess að sumarið er meðal annars tími reiðhjóla, hlaupahjóla, línuskauta og hjólabretta. Slík farartæki eru mörgum mikill gleðigjafi en til að tryggja að gleðin snúist ekki upp í andhverfu sína er mikilvæg að notaðir séu hjálmar og aðrar hlífar. Til eru sérstakir hjálmar fyrir línuskauta og hjólabretti en hjólreiðahjálmurinn er hannaður þannig í dag að hægt er að nota hann á öll þessi farartæki.
Í umferðarlögum segir að börn yngri en 15 ára sé skylt að nota hjólreiðahjálm við hjólreiðar.
Það er hins vegar ekki nóg að brýna fyrir börnunum mikilvægi þess að nota hjálm heldur verða foreldrar líka að sýna gott fordæmi því börnin læra ju´það sem fyrir þeim er haft. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar má m.a. finna ýmsan fróðleik varðandi hjálmanotkun. Meðal annars er bent á eftirfarandi atriði sem hafa ber í huga varðandi hjólreiðahjálma
Eftirfarandi atriði ber að hafa í huga varðandi hjólreiðahjálma:
- Á hjólreiðahjálminn má ekki setja auka límmiða, þar sem það getur haft áhrif á höggþol hans.
- Tússlitir innihalda leysiefni sem geta eyðilagt plastið í hjólreiðahjálminum og því skal ekki krota á hann.
- Hjólreiðahjálmur er viðkvæmur öryggisbúnaður og þolir illa mikið högg, t.d. við það að lenda á hörðum fleti. Brýnið því fyrir barninu að hugsa vel um hjálminn sinn. Hjólreiðahjálmur sem hefur orðið fyrir miklu höggi er ónýtur.
- Fara þarf reglulega yfir stillingar á hjólreiðahjálminum, hvort stærð hjálmsins henti enn barninu og hvort skipta þurfi um svampa inni í honum.
- Framleiðendur ábyrgjast hjólreiðahjálminn ekki lengur en í fimm ár þar sem plastið í honum brotnar smám saman niður vegna sólarljóssins. Endingartíminn fer þó algjörlega eftir því hvernig hugsað hefur verið um hann. Reikna má með því að hjólreiðahjálmar yngri barna sem verða fyrir meira hnjaski en annarra endist skemur, jafnvel einungis í 1-2 ár.
- Ekki má nota húfu eða eyrnaband undir hjólreiðahjálminum, þar sem hjálmurinn situr þá ekki nógu þétt á höfðinu. Þegar kalt er í veðri skal nota þunna lambhúshettu eða þar til gerðar eyrnahlífar.
Aftur til baka í slagorð
|